Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að stjórnvöld í Tyrklandi verði að bregðast strax við og veita 130.000 sýrlenskum flóttamönnum aðstoð, en fólkið hefur flúið stríðsátökin í heimalandi sínu og farið yfir landamærin til Tyrklands á undanförnum dögum.