Í dag verður opnuð yfirlitssýning á verkum Einar Hákonarsonar listmálara á Kjarvalsstöðum. Sýningin nefnist Púl tímans og spannar 50 ára feril málarans sem varð sjötugur í vikunni. Hér má sjá innslag um verk hans „Skipbrotsmanninn“ en þrekvirki Guðlaugs Friðþórssonar árið 1984 var innblásturinn að því.