Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells sagði sitt lið hafa verið lengi í gang í kvöld þegar það mætti Grindavík í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deild kvenna í körfuknattleik. Ingi var þó sáttur með sigurinn og sagðist ekki geta beðið eftir að hefja úrslitarimmuna gegn Keflavík eða eins og hann orðaði það, „að hefja veisluna.“