„Hvað kemur öðrum það við hvað maður hefur í íbúðinni sinni,“ segir Sigurveig Buch íbúi hjá Brynju, Hússjóði Öryrkjabandalagsins. Fyrir skömmu barst íbúum bréf þar sem íbúar eru beðnir um að losa sig við hunda eða ketti í húsnæði Brynju eða eiga annars á hættu að leigusamniningi yrði rift.