Bandaríkjaher hefur ákveðið að banna lagningu olíuleiðslu undir vatnsból á landareign hersins í Norður-Dakóta. Frá þessu greina frumbyggjar og aðgerðarsinnar sem hafa mótmælt lagningu leiðslunnar. Standing Rock-ættbálkurinn segir að þetta sé söguleg niðurstaða.