Skátasveitin Troop 6000 hittist á hverjum föstudegi í New York. Stúlkurnar í hópnum eiga það allar sameiginlegt að vera heimilislausar. Þær búa í gistiskýli í Queens þar sem margar fjölskyldur búa. „Við erum ekki öðruvísi en þau fyrir utan að við erum heimilislausar,“ segir Karina Cabrera, 11 ára.