Tjaldborg hefur nú risið suður af Mexíkóborg þar sem hluti þeirra íbúa, sem misstu heimili sín í jarðskjálftanum á þriðjudag, hefur komið sér fyrir. Íbúar í Girasoles-íbúðakjarnanum, þar sem mörg hús eru illa farin, fá 20 mínútur hver heima hjá sér til að taka saman nauðsynjar.