Nætursvefn gefur hærri einkunn
Námsmenn sem vaka heilu næturnar við próflestur ættu ef til vill að hugsa sig tvisvar um og fá í staðinn góðan nætursvefn því að samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem gerð var í Bandaríkjunum fá þeir sem aldrei lesa undir próf á nóttunni lítið eitt hærri einkunnir en nátthrafnarnir.
Könnunin var gerð meðal 120 nemenda við lítinn háskóla í New York. Þeir nemendur sem aldrei höfðu vakað heila nótt yfir skólabókunum höfðu að meðaltali fengið örlítið hærri einkunnir en þeir sem lesið höfðu á nóttunni.
Munurinn reyndist að vísu lítill, en höfundur könnunarinnar, Pamela Thacher, aðstoðarprófessor í sálfræði, segir niðurstöðurnar engu að síður sláandi. Hún sinnir rannsóknum á svefni og fullyrðir að enginn geti hugsað skýrt klukkan fjögur á nóttunni.
Niðurstöðurnar verða birtar í janúarhefti tímaritsins Behavioral Sleep Medicine.
Bloggað um fréttina
-
Steinn Hafliðason Farinn að sofa -
Eiður Ragnarsson Ekki í fyrsta skipti... -
Helgi Kristinn Jakobsson Sama ruglið eins og vanalega.... -
Guðlaug Birna Björnsdóttir Þetta hef ég nú alltaf vitað
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























