Vandræðalegt fyrir Microsoft

Það er ekkert launungarmál að bilanatíðni Xbox360 tölvunnar er óeðlilega há, eða allt að 16 prósent samkvæmt fullyrðingum sumra fagaðila. Það er engu að síður einstaklega vandræðalegt þegar tölvur bila á fagsýningum eins og gerðist á GDC sýningunni í San Francisco þegar Xbox360 tölva í sýningarbási Microsoft fékk hinn víðfræga rauða hring dauðans fyrir framan fjölmennan hóp af blaðamönnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert