Í lagi að drekka vín með barn á brjósti
Nú mega konur með barn á brjósti drekka vín og áfenga drykki í hófi. Sænska manneldisráðið hefur hingað til ráðlagt konum að drekka ekki áfengi þar sem talið var að það findi sér leið í gegnum brjóstamjólkina og gæti haft skaðleg áhrif á barnið en nú hefur verið horfið frá þeirri stefnu.
Samkvæmt frétt í sænska ríkissjónvarpinu hefur sænska manneldisráðið yfirfarið öll þau ráð sem gefin eru óléttum konum og konum með barn á brjósti og komist að þeirri niðurstöðu að tími sé kominn til að færa sum þeirra til nútímans.
Samkvæmt nýju ráðgjöfinni eiga konur með barn á brjósti að geta drukkið eitt til tvö vínglös einu sinni til tvisvar í viku en óléttar konur eiga eigi að síður að halda sig frá öllu áfengi.
Vitnað er í rannsóknir Olle Hernell prófessors í ungbarnalækningum við háskólann í Umeå en hann hefur komist að þeirri niðurstöðu að hófleg áfengisneysla kvenna með barn á brjósti sé ekki skaðleg fyrir barnið.
Bloggað um fréttina
-
Sóla Allt er best í hófi -
Þorsteinn Gunnarsson Og eina mjóa línu hálfsmánaðalega -
Þórhildur Daðadóttir Nei hættu nú... -
Jónína Benediktsdóttir Bull er þetta! -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Ekkert er nú yndislegra en að hafa barn á brjósti, ... -
Sigurður R. Guðmundsson Ekki það sem íslenskir læknar eða WHO mæla með -
Morten Lange Mömmur í JP: Velja hjól fram yfir börn
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























