Fjórðungur þjóðarinnar á Facebook

Facebook er ein - ef ekki sú vinsælasta - samskiptasíða …
Facebook er ein - ef ekki sú vinsælasta - samskiptasíða á netinu.

Rúmlega 75.000 Íslendingar, tæplega fjórðungur þjóðarinnar, eru nú skráðir á samskiptavefnum Facebook. Konur talsvert fleiri en karlar, eða 45.760 talsins. Karlarnir eru 27.320 miðað við skráninguna í dag. Skv. upplýsingum frá Hagstofu Íslands eru Íslendingar 320.000 talsins. 

Mark Zuckerberg fékk hugmyndina að Facebook þegar hann var við nám í Harvard og hleypti síðunni af stokkunum árið 2004. Facebook átti upphaflega að auðvelda Harvard-nemum að eiga samskipti innbyrðis en fljótlega tóku aðrir háskólar í Bandaríkjunum að tengja sig við Facebook-netið og í kjölfarið allur heimurinn, svo að segja, því skráðir notendur eru nú yfir 100 milljónir.

Eins og sést á myndinni, neðst í hægra horninu, þá …
Eins og sést á myndinni, neðst í hægra horninu, þá eru rúmlega 75.000 Íslendingar skráðir á Facebook.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert