Ástralskur stuðbolti

Ástralskur ofurhugi framkvæmir rafmagnað áhættuatriði þar sem sem allt að 500.000 volt koma við sögu.

Peter Terren, sem er frá Bunbury í Vestur-Ástralíu, kemst í stuð þegar hann leikur sér með rafmagn. Hann sýnir svo atriðin í bakgarðinum heima hjá sér.

Hann notar heimatilbúinn straumbreyti til að búa til eldingasýningu sem lýsir upp hverfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert