Kynæsandi svitalykt karla
Líklega glampar á vaxtarræktarmennina vegna olíunnar sem þeir smyrja sig með frekar en að kynæsandi sviti sé orsökin. Golli/ Kjartan Þorbjörnsson
Rannsókn vísindamanns við St Andrews-háskólann í Skotlandi hefur leitt í ljós að í svita er efnasamband sem getur aukið kynferðislegt aðdráttarafl karlsins á konur, segir í Independent. Séu menn mjög duglegir að þvo sér getur hreinlætið af þessum sökum dregið úr áhuga kvenna.
Efnasambandið, sem nefnist androstadienone, finnst bæði í svita karla og kvenna. Það á rætur að rekja til karlhormónsins testósteróns og hefur mælanleg áhrif á konur.
Vísindamaðurinn, Tamsin Saxton, gerði tilraun með því að setja lítinn dropa af efnasambandinu á efri vör alls 50 kvenna áður en þær fóru á stefnumót og var um að ræða marga karla á löngu tímabili. Til samanburðar voru aðrar konur sendar á stefnumót með mönnunum en þær fengu aðeins vatn eða olíu á efri vörina.
Konurnar gáfu körlunum einkunn á skalanum 1 til 7 eftir stefnumótin. Í ljós kom að konunum með androstadieone á vörinni fannst karlarnir ívið meira spennandi en hinum konunum. Mestur var munurinn hjá konum á aldrinum 18-22 ára.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason ÞETTA ERU ALLS EKKI NÝ TÍÐINDI OG ER ALLS EKKI ... -
Herra 400 Búkylmur -
Ragnheiður J. Sverrisdóttir Svitalykt nei takk :) -
Jón Snæbjörnsson Nú hver ansk.......... -
Brynjar Jóhannsson Konum líkar þá ekki við medrósexual-karlpempíunar eftir allt saman.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























