„Viagra fyrir konur“ væntanlegt

Viagra er stinningarlyf fyrir karlmen. Flibanserin mun þjóna svipuðum tilgangi fyrir konur, þ.e. að auka ...

Viagra er stinningarlyf fyrir karlmen. Flibanserin mun þjóna svipuðum tilgangi fyrir konur, þ.e. að auka kynhvöt þeirra.

Þýska lyfjafyrirtækið Böhringer Ingelheim undirbýr nú markaðssetningu nýs lyfs, Flibanserin, sem er að kalla má nýtt Viagra fyrir konur. Lyfið var fyrst prófað sem þunglyndislyf en eftir að konur sem tóku þátt í rannsóknum greindu frá aukinni kynorku við notkun lyfsins var farið í að þróa það áfram sem lostalyf.

Viagra varð einnig til eftir að hafa verið þróað í öðrum tilgangi upphaflega, þ.e. sem lyf gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Að öðru leyti eiga lyfin lítið sameiginlegt. Greint er frá þessu á þýsku fréttaveitunni Deutsche Welle.

Flibanserin er ætlað að hjálpa konum á barneignaraldri sem stríða við skort á kynhvöt. Í rannsóknum sem gerðar voru í Kanada, Evrópu og Bandaríkjunum var tvöþúsund konum gefið lyfið, eða lyfleysu, í hálft ár. Konur sem tóku 100 milligrömm af lyfinu á dag fundu hjá sér „talsverða aukningu" í fjöldanum á „fullnægjandi ástarfundum" sem þær upplifðu og kynhvöt sinni.

Talið er líklegt að fyrirtækið, sem er næststærsti lyfjaframleiðandi Þýskalands, geti markaðssett Flibanserin innan þriggja ára.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Eve Online gerist í fjarlægum heimi.

Reyna laða fleiri að EVE Online

18:19 Tölvuleikjafyrirtækið CCP látið útbúa ný vefsvæði fyrir tölvuleikinn EVE Online. Annars vegar er um að ræða síðu þar sem allar upplýsingar eru fyrir hendi skyldi einhver hafa áhuga á að hefja leik, en hins vegar hefur samfélagssvæðið verið stórbætt, en þar geta spilarar rætt saman. Meira »
Rússnesku vísindamennirnir fagna á Suðurskautslandinu.

Stöðuvatn einangrað í 20 milljónir ára

15:24 Loksins eftir tveggja áratuga rannsóknir hefur rússneskum vísindamönnum tekist að bora niður að risastóru stöðuvatni undir íshellunni á Suðurskautslandinu. Hugsanlega er í vatninu að finna fornar lífverur sem gætu gagnast við leit að lífi á öðrum hnöttum. Meira »

Helmingur 8-12 ára á Facebook

í gær Næstum helmingur 8-12 ára breskra barna notar Facebook þótt þau séu of ung til að mega vera á samskiptavefnum. Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Meira »

10 þúsund tíst á sekúndu

Aðdáendur New York Giants fagna sigrinum í Ofurskálinni.
í gær Óhætt er að segja að samskiptaþráðurinn Twitter hafi logað á meðan leikið var til úrslita í Ofurskálinni. Á síðustu 180 sekúndum leiksins voru send að meðaltali 10 þúsund tíst á hverri sekúndu. Meira »

iPhone styrkti stöðu sína

iPhone seldist vel í fyrra.
í fyrradag iPhone æði greip um sig á síðasta ári á heimsvísu og við það komst Apple í þriðja sætið yfir þá farsímaframleiðendur sem seldu mest. Nokia er sem fyrr í efsta sæti en fyrirtækið seldi 113,5 milljónir síma. Meira »

Drinkorexía er áhyggjuefni

í gær Sú tilhneiging ungmenna að svelta sig til þess að geta neytt áfengis án þess að hafa áhyggjur af því að fitna er kölluð „drinkorexía“ og er vaxandi áhyggjuefni víða um heim. Meira »

„Snjallasta vél í heimi“

Watson stórtölvan
í gær Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir blaðsíðna.  Meira »

„Ekki treysta gervihnattasímum“

Gervihnöttur fyrir GPS-staðsetningarkerfi á sveimi yfir jörðinni.
5.2. Sérfræðingar vara við því að með næga tölvuþekkingu geti hver sem er hlerað gervihnattasíma sem meðal annars ýmis stjórnvöld nýti sér til samskipta á svæðum þar sem ekki er hægt að treysta á hefðbundna samskiptatækni. Meira »

Breyttir lífshættir skipta sköpum

Reykingar drepa
3.2. Hægt er að koma í veg fyrir 30% krabbameinstilfella með breyttum lífsháttum. Einn helsti áhættuþátturinn er reykingar.  Meira »

Íslenskt „app“ slær í gegn

Forritið Air Media Center frá íslenska fyrirtækinu App Dynamic ehf streymir efni milli tölvu og ...
2.2. Nýtt íslenskt snjallsímaforrit, „app“, sem hannað er fyrir iPhone og iPad hefur slegið í gegn meðal notenda um allan heim. Eftir aðeins nokkurra daga sölu hefur forritið, Air Media Center, farið í efstu sæti sölulista í yfir 40 löndum og heldur áfram að klífa listana víða um heim. Meira »

Fara með farþega í geiminn

Geimskutla. Mynd úr myndasafni.
2.2. Fyrsta tilraunaflug með farþega til alþjóðlegu geimstöðvarinnar gæti orðið að veruleika í mars. Þetta staðhæfir NASA, bandaríska geimferðastofnunin. Meira »

Nýr Samsung Galaxy-sími á leiðinni

Samsung Galaxy SII síminn er af mörgum talinn besti Android síminn
2.2. Samsung hefur staðfest að nýr Samsung Galaxy-sími verði kynntur til sögunnar fyrir júnílok.  Meira »

Heilablóðfall hefur áhrif á börnin

Rannsóknin miðaði að því að rannsaka börn sem áttu foreldra sem höfðu fengið heilablóðfall.
2.2. Börn sem eiga foreldra sem fengið hafa heilablóðfall fyrir 65 ára aldur eru í meiri áhættu fyrir því að fá einkenni sem benda til þau geti líka fengið heilablóðfall. Þetta sýnir könnun sem kynnt var á læknaþingi í New Orleans í dag. Meira »

Setlög á Drekasvæðinu 260 milljón ára gömul

Drekasvæðið.
1.2. Útboð á sérleyfum til olíurannsókna og -vinnslu á Drekasvæðinu stendur nú sem hæst. Rannsóknir benda til að gömul setlög sé að finna á svæðinu en elsta sýnið er 260 milljón ára gamalt. Meira »

Gervitungl á tæpasta vaði

Rosat féll til jarðar í október sl.
31.1. Þýski rannsóknargervihnötturinn Rosat hrapaði í Bengalflóa í október sl., rúmlega 20 árum eftir að honum var skotið á loft. Útreikningar sýna hins vegar að ef hann hefði hrapað sjö mínútum seinna þá hefði hann hæft Peking, höfuðborg Kína. Meira »

Facebook á Wall Street

1.2. Samskiptavefurinn Facebook hyggur á skráningu á Wall Street. Markmiðið er að auka hlutafé Facebook um tíu milljarða Bandaríkjadollara. Verði af hlutafjárútboðinu verður það hið stærsta sem um getur þegar tæknifyrirtæki á í hlut, en fyrra metið á Google. Meira »

Pfizer innkallar pilluna

Lo/Ovral-28 pillan hefur verið innkölluð
1.2. Bandaríski lyfjarisin Pfizer hefur þurft að innkalla eina milljón pakkninga af getnaðarvarnarpillum vegna mistaka í pökkun sem geta dregið úr virkni þeirra og um leið aukið líkur á ótímabærri þungun. Meira »

Smástirni framhjá jörðinni

Smástirnið Eros.
31.1. Smástirnið Eros fer í dag framhjá jörðinni í 26,8 milljón kílómetra fjarlægð. Eros hefur nokkrum sinnum farið framhjá jörðu frá því smástirnið sást fyrst árið 1898. Meira »
Finnur.is
Í rólegheitum í miðbæ Reykjavíkur.
Á Laugavegi þakíbúð allt sem til þarf ásamt heitum potti. Áttu punkta á www.poi...
ættbókafærðir labradorhvolpar til sölu
Yndislegir labrador hvolpar til afhendingar 8. feb með ættbók frá HRFÍ og tryggi...
LINCOLN NAVIGATOR ELITE LONG 08
Lincoln Navigator Elite Long ´08 Flottasta gerðin. Ek. 65 þ...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
 
Bókaveisla

Bókaveisla Hinni landsfrægu og margrómu...
4 mál

None...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
 
síða atvinnu | Lesa blaðið