Verðlaunin geymd inn í skáp

Mel Gibson ásamt sambýliskonu sinni Oksana Grigorieva
Mel Gibson ásamt sambýliskonu sinni Oksana Grigorieva Reuters

Leikarinn Mel Gibson hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir störf sín í gegnum tíðina. Er svo komið að hann er farinn að geyma verðlaunin inni í skáp en nýjasta mynd hans, Edge of Darkness, var frumsýnd vestanhafs fyrir helgi. Átta ár eru síðan Gibson sást síðast á hvíta tjaldinu.

Gibson gerir góðlátlegt grín að sjálfum sér og verðlaunagripunum. „Stundum pússa ég þá og kynni þá fyrir hver öðrum. Og svo slekk ég ljósið, kveiki á kertum... og ef ég er heppinn þá fjölga þeir sér."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert