Samið um tækniþjónustu

Eggert Herbertsson framkvæmdastjóri Omnis þjónustu ehf. og Guðrún Gunnarsdóttir verkefnastjóri …
Eggert Herbertsson framkvæmdastjóri Omnis þjónustu ehf. og Guðrún Gunnarsdóttir verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum handsala samninginn.

Ríkiskaup og Omnis þjónusta ehf. hafa gert rammasamning  um tækniþjónustu. Í fréttatilkynningu frá Omnis kemur fram að þetta er í fyrsta skipti sem slíkur samningur er gerður vegna tækniþjónustu.

Þetta þýðir í raun að aðilum rammasamnings, sem eru ríkisstofnanir og fjölmörg sveitarfélög,  er óheimilt að leita til annarra aðila með tækniþjónustu en þeirra tækniþjónustufyrirtækja sem valin voru af Ríkiskaupum að loknu útboði.

Starfsmenn  Omnis og Omnis þjónustu  eru í dag 20 talsins í Reykjanesbæ, Akranesi og  í Borgarnesi og vonast forráðamenn fyrirtækisins til þess að þeim  fjölgi í kjölfar samningsins við Ríkiskaup.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert