13 milljarða ára á leiðinni

Reuters

Stjörnufræðingar hafa uppgötvað fjarlægustu vetrarbraut sem vitað er um fram að þessu.

Ljós frá henni barst til jarðar í dag, það var rúma  þrettán milljarða ára á leiðinni og fór á 300.000 kílómetra hraða á sekúndu.

Til samanburðar má nefna að ljósið lagði af stað um 600 milljón árum eftir Miklahvell. Uppgötvunin leiðir í ljós að stjörnur og vetrarbrautir voru farnar að myndast þegar alheimurinn var enn að slíta barnsskónum.

Vetrarbrautin hefur hlotið nafnið UDFy-38135539.

Risavaxinn stjörnukíkir í Atacama eyðimörkinni í Chile var notaður við rannsóknina.

Ítarleg umfjöllun um vetrarbrautina er á Stjörnufræðivefnum



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert