Einstakur ungi í dýragarðinum

Kieara litla er einstök.
Kieara litla er einstök.

Það er ekki ofsögum sagt að litli unginn sem fæddist í dýragarði í Síberíu nýverið sé einstakur. Faðir hans er afrískt ljón en móðirin er blendingur ljóns og tígrisdýrs.

Ekki er óþekkt að tígrisdýr og ljón eignist afkvæmi en hins vegar hafa þau hingað til verið talin ófrjó.

Litli unginn sem heitir Kiara er því af tegund sem kallast „liliger“ en móðir hennar er af tegund sem kölluð er „liger“.

Sjáið myndskeið af Kiöru litlu hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert