Yfir 450 þúsund áskrifendur að EVE Online

Í dag kemur kínversk útgáfa fjölspilunarleiks CCP EVE Online út í Kína. Útgáfan er liður í samstarfi CCP og TianCity, eins stærsta framleiðanda og dreifingaraðila tölvuleikja í Kína, við endurútgáfu og markaðssetningu leiksins fyrir Kínamarkað.

 Í tengslum við útgáfu EVE Online í Kína í samvinnu við TianCity, og velgengni nýjustu viðbótar leiksins, Retribution, sem kom út í síðustu viku, hefur CCP slegið nýtt met í fjölda áskrifenda EVE Online. Í fyrsta sinn í níu ára sögu leiksins hefur fjöldi áskrifenda hans farið yfir 450.000.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá CCP.

 CCP hóf sölu áskriftarleiða að kínverskri útgáfu EVE Online fyrir viku og hefur sala áskrifta þegar farið fram úr væntingum, að því er segir í tilkynningunni.

 Kína er einn stærsti tölvuleikjamarkaður heims og netleikir eru þar í mikilli sókn, samhliða aukinni netvæðingu landsins. CCP hefur starfrækt EVE Online í Kína frá árinu 2006, í samvinnu við dreifingaraðilann Optic Communications, þar sem leikurinn hefur vaxið jafnt og þétt.

Samningur CCP við stærri og öflugri dreifingaraðila og sú þróunarvinna sem hefur átt sér stað á bakvið nýja kínverska útgáfu af leiknum er í samræmi við áform CCP um aukna sókn á Kínamarkað.

 Sérstök forútgáfa af kínverskri útgáfu EVE Online kom út í júní og síðan hefur verið unnið að því að leysa ýmis tæknileg atriði í tengslum við útgáfuna og að netþjónar standist það álag sem almenn útgáfa leiksins í Kína hefur í för með sér. 

 EVE Online, sem fagnar tíu ára afmæli á næsta ári, er nú fáanlegur á fimm tungumálum; ensku, rússnensku, þýsku, kínversku - og japönsku í kjölfar útgáfu CCP á leiknum í Japan í fyrra í samvinnu við leikjaútgefandann og dreifingaraðilann NEXON, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert