Dýrasta sjónvarpið á Íslandi

Örn Beck og Skúli Oddgeirsson við tækið í Samsungsetrinu.
Örn Beck og Skúli Oddgeirsson við tækið í Samsungsetrinu.

Dýrasta sjónvarpstæki sem hingað til lands hefur komið var kynnt í dag í Samsung-setrinu. Tækið er 85 tommu Samsung S9 Ultra HD snjallsjónvarp. Það er framleitt í mjög takmörkuðu upplagi en Samsungsetrið mun vera með örfá tæki í sölu. Tækið kostar 7,8 milljónir króna en dýrustu sjónvarpstækin á markaðnum hér á landi hafa kostað í kringum 2 milljónir króna, segir í fréttatilkynningu frá Samsung-setrinu.

Tækið er með Ultra HD og Quad Core örgjörva og er 1000Hz. M.a. er hægt að nota radd- og handahreyfingar til að stjórna þvi og mögulegt að flytja efni á milli sjónvarpsins, spjaldtölvu og snjallsíma.  

„Okkur bauðst að fá þetta tæki í sölu fyrir jólin og ákváðum við að slá til þrátt fyrir verðið þar sem þetta er alveg magnað tæki og raunar alveg einstakt hvað varðar tækni og hönnun,“ er haft eftir Skúla Oddgeirssyni, verslunarstjóra í Samsungsetrinu í fréttatilkynningu.

„Tækið er bæði gríðarlega stórt og með ótrúlega mikil hljóð- og myndgæði. Þetta er eins og að skyggnast inn í framtíðina.“ 

Skúli segir þetta eina tæki sinnar tegundar á Íslandi og það sé þegar selt. „Kaupandinn hefur samþykkt að tækið verði til sýnis í í Samsungsetrinu fram í janúar,“ segir Skúli en fyrirtækinu er ekki heimilt að gefa upp hver kaupandinn er. 

Þetta flykki er selt.
Þetta flykki er selt. Ljósmynd/Samsungsetrið
Tækið kostar 7,8 milljónir.
Tækið kostar 7,8 milljónir. Ljósmynd/Samsungsetrið
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert