Hönnuð í kringum EVE online

AFP

Á raftækjasýningunni CES í Las Vegas fengu Oculus-gleraugun verðlaun sem besta væntanlega tækið. Þrátt fyrir að vera ekki komin út er Oculus nú þegar orðin margverðlaunuð græja enda munu þau breyta leikjaspilun til framtíðar. Gestir og gangandi gátu prófað tækið á sýningunni og þar var EVE online-leikurinn notaður til spilunar. Biðröð myndaðist við bás Oculus. 

Oculus-töluvleikjagleraugnanna er beðið með gríðarlegri eftirvæntingu. Gleraugun eru sett á og tölvuleikurinn birtist nánast lifandi fyrir framan spilarann. Þau eru ekki enn komin í búðir þrátt fyrir að vera nánast tilbúin. Stefnt er á að þau komi í búðarhillur seint á þessu ári eða snemma á því næsta. Í desember safnaði Oculus VR, framleiðandi gleraugnanna, 75 milljónum dollara í hlutabréfaútboði, rúmlega níu milljörðum króna þegar nýjasta útgáfa af þessu undratæki var kynnt. Vandamálið við þrívíddargleraugu hefur verið að fólk verður hreinlega veikt og kastar upp. Nýjasta útgáfan af Oculus sem kynnt var á CES-hátíðinni í Las Vegas í janúar miðar að því að gera hreyfingar eðlilegri. Allir vildu prófa og allir vildu kaupa. Biðröð var eftir að fá að setjast í stólinn og prófa.

Framleiðendur Oculus vilja hinsvegar bíða og koma með fullkomna vöru á markað en ekki eitthvað sem er alltaf að bila, hvað þá að láta tölvuleikjaspilara vera að kasta sífellt upp. Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur aðstoðað við gerð gleraugnanna með leiknum EVE: Valkyrie sem verður fyrstu persónu flugleikur. Leikurinn byggist á nýrri tækni á sviði sýndarveruleika þar sem spilurum er gefinn kostur á að gerast flugmenn í geimskipum í EVE-heiminum. Er markmiðið að sá er spilar leikinn finnist að hann sé í raun og veru að taka þátt í bardaganum.

Fjárfesting sem skilar sér

„EVE: Valkyrie er hraður og óvæginn þar sem spilarar eigast við í skotbardögum. Sýndarveruleikinn sem leikjahönnun EVE: Valkyrie byggist á gerir upplifunina einstaklega raunverulega og þannig úr garði gerða að það er engu líkara en spilari leiksins sé kominn í flugstjórasæti geimskipsins, þar sem hann mætir óvinum sínum og hættum,“ sagði í tilkynningu frá CCP þegar leikurinn var kynntur árið 2013.

Það sem er merkilegt við Oculus-gleraugun er eftirvæntingin eftir þeim. Þau eru ekki komin í búðir. Þrátt fyrir það eru þau margverðlaunuð og verðlaunin á CES er enn ein rósin í hnappagat Oculus.

Þeir blaðamenn sem hafa fengið að prófa hafa allir hrifist svo mikið af þessari tækni að úti um allt internet er hrós og mikil gífuryrði um ágæti þeirra. Eftirvæntingin er nú þegar orðin mikil hjá væntanlegum kaupendum og er talað um að samspil Oculus og CCP muni skila fyrirtækjunum báðum milljónum dollara. Ekki minnkaði eftirspurnin og lofið á gleraugun eftir hátíðina þar sem almenningur fékk að prófa.

Hilmar sjálfur orðinn spenntur

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, var staddur á CES-sýningunni og var tekinn tali af tæknivefsíðum og tækniblöðum. „EVE: Valkyrie byrjaði sem þróunarverkefni hjá nokkrum starfsmönnum CCP, eitthvað sem þá langaði til að gera. Leiksins er nú þegar beðið með mikilli eftirvæntingu – og var farið að gera það löngu áður en við fórum að tala um hann. Við höfum stór plön fyrir EVE: Valkyrie og ég get ekki beðið eftir því að geta sagt ykkur meira í lok árs,“ var haft eftir Hilmari.

CCP réði Owen O'Brian til að stýra framleiðslu og þróun EVE: Valkyrie. Mun O'Brian starfa á Newcastle-skrifstofu fyrirtækisins, en hann er með áralanga reynslu frá tölvuleikjafyrirtækinu DICE í Svíþjóð, sem er í eigu Electronic Arts. O'Brian stýrði meðal annars framleiðslu á leiknum Mirror's Edge, en það var fyrstu persónu hasarleikur.

Safnaði milljón á 36 klukkustundum

Markmið Oculus er að gleraugun verði ekki dýr fyrir tölvuleikjaspilara. Hugmyndin að baki þrvívíddargleraugunum er komin frá ungum tölvusnillingi að nafni Palmer Luckey sem vildi gera þrívíddargleraugu sem væri betri en önnur sem væru fyrir á markaðnum. Einhver sem myndu virka með nýjustu tölvuleikjunum og væru ódýr. Hugmyndi Luckey var strax vel tekið og tók einungis 36 klukkutíma að safna milljón dollurum gegnum hópfjármögnunarsíðuna Kickstarter þegar hugmyndin var kynnt. Alls söfnuðust 2,4 milljónir dollara til að koma þróun gleraugnanna af stað.

Gleraugun eru með tvo sjö tomma skjái og hefur hönnun þeirra einnig fengið verðskuldaða athygli. Þau þykja nokkuð töff. Sjónsviðið er 90° lóðrétt og 110° lárétt þannig að ekki er mikill munur á gleraugunum og sjónsviði mannsins. Stefnt er á að gleraugun verði með 1.080 punkta upplausn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert