Margir virtu blóðmánann, almyrkva á tungli, fyrir sér í dag en hann mátti sjá frá vesturhluta Norður-Ameríku, Kyrrahafinu, austurhluta Ástralíu og Asíu. Máninn sást ekki frá Íslandi að þessu sinni. Nokkrar myndir af blóðmánanum má sjá í myndasyrpu sem fylgir fréttinni.
Almyrkvi á tungli verður þegar tunglið fellur inn í skuggann sem jörðin varpar á tunglið en þetta er í eina skiptið sem skuggi jarðar fellur á tunglið. Þetta gerist aðeins þegar tunglið er fullt, þ.e. þegar jörð er á milli sólarinnar og tunglsins.
Rauði liturinn skýrist af ljósdreifingu, þ.e. ljós frá sólinni berst í gegnum lofthjúp jarðarinnar, dreifist og verður rautt. Ljósið fer til tunglsins, endurvarpast á yfirborðinu og þá sést ljósið frá öllum sólarupprásunum og sólsetrum jarðarinnar.
Hér má lesa meira um tunglmyrkva.