„Náttúrulífsmynd“ úr GTA V

Sandkassaleikirnir GTA eru sennilega þekktastir fyrir rosalega eltingaleiki, vafasamt siðferði, furðulegar persónur og óhóflegt ofbeldi.

Nýjasti leikurinn í seríunni, GTA V, er í rauninni engin undantekning frá því. Hönnuðir leiksins virðast hins vegar hafa lagt mjög mikið á sig til að skapa fallegan neðansjávarheim, sem fáir spilarar munu nokkurn tíma sjá.

Hér má sjá „náttúrulífsmynd“ sem er búin til með því að kafa í undirdjúpin í heimi GTA V.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert