Vilja aukinn kraft í baráttuna við upplýsingaóreiðu

ESB vill að tæknirisarnir takist betur á við upplýsingaóreiðu.
ESB vill að tæknirisarnir takist betur á við upplýsingaóreiðu. AFP

Evrópusambandið þrýstir mjög á tæknirisana, svo sem Facebook, YouTube og TikTok, að gera meira í baráttunni við upplýsingaóreiðu, veita betri aðgang að al­g­o­rit­mum sínum og setja aukinn kraft í  staðreyndavöktun. 

Þetta er liður í viðleitni ESB að styrkja núgildandi siðareglur hvað varðar upplýsingaóreiðu sem voru settar á laggirnar árið 2018 eftir að upplýst var um þá upplýsingaóreiðu sem átti sér stað á samfélagsmiðlunum í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna um útgöngu Breta úr ESB (Brexit) og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016. 

Tæknifyrirtækin Google, Facebook, Twitter og Microsoft rituðu undir samkomulagið það ár og í júní í fyrra bættist TikTok við ásamt öllum stóru auglýsingastofnunum.

Í kjölfar kórónuveirufaraldursins hefur framkvæmdastjórn ESB beint því til þeirra fyrirtækja sem skrifuðu undir samkomulagið um að ganga enn lengra hvað varðar skuldbindingar sínar á þessu sviði.

Varaforseti framkvæmdastjórnarinnar, Vera Jourova, segir að harðari og nákvæmari siðareglur séu nauðsynlegar til að ráðast gegn skipulagðri áhættu á vefjunum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert