Skrefi nær vetni og rafeldsneyti á Reyðarfirði

Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri og René Van Der Plas framkvæmdastjóri …
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri og René Van Der Plas framkvæmdastjóri alþjóðlegra samskipta hjá Rotterdamhöfn eftir undirritun viljayfirlýsingarinnar í Rotterdam. Ljósmynd/Fjarðabyggð

Viljayfirlýsing um samstarf milli Rotterdamhafnar og Fjarðabyggðarhafna á sviði hafnamála með sérstaka áherslu á framleiðslu vetnis og annarra grænna orkugjafa var undirrituð í Rotterdam á fimmtudag.

Vakin er athygli á þessu á vef Fjarðabyggðar og segir þar að um sé að ræða „skref í þróun á hugsanlegri framleiðslu á vetni og rafeldsneyti í grænum orkugarði sem stefnt er á að settur verði á laggirnar á Reyðarfirði.“

Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri hafna, sóttu fyrir hönd Fjarðabyggðahafna fundi og málstofur sem Hollenska ríkið efndi til um framleiðslu græns vetnis og rafeldsneytis sem haldnir voru í Amsterdam.

Þátttakendum frá fjórtán öðrum löndum í heiminum þar sem líklegt þykir að framleiðsla vetnis og grænna orkugjafa muni fara fram var einnig boðið.

„Rotterdamhöfn er stærsta höfn í Evrópu með gríðarmikil umsvif og þar er að finna mikla þekkingu á iðnaði og flutningum og ekki síst flutningi á slíkum orkugjöfum. Að hafa slíkan samstarfsaðila er ómetanlegt fyrir Fjarðabyggðarhafnir í þeirri vinnu sem fram undan er, enda er það markmið bæjarstjórnar Fjarðabyggðar að sveitarfélagið verði miðstöð framleiðslu grænna orkugjafa á Íslandi,“ segir á vef Fjarðabyggðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert