Strandveiðin þarf ekki að vera svona dýr"

Þorskur veiðist á stöng svo að segja um allt land …
Þorskur veiðist á stöng svo að segja um allt land við ströndina

Við höfum fengið feykilega mikið af við brögðum við fréttinni um strandveiðina og það er vonandi að þetta hafi kveikt áhuga hjá fólki til að prófa enda frábært sport fyrir alla fjölskylduna.

Við slógum saman verði sem við sáum auglýst og settum saman pakka af búnaði, völdum kannski of mikið af því allra besta, og útkoman var um 250.000.  Tommi hjá Veiðiportinu sendi okkur póst og vildi koma því á framfæri að það væri hægt að versla þennan búnað fyrir mun minna verð.  "Við seljum bestu settin okkar með ofurlínum á undir 40 þús + standur 10.000 kr.  Sökkur slóðar klippur og taumar fyrir 10.000 kr duga út sumarið.  Og athugaðu að þetta er ekkert drasl því t.d. Jaxon stangirnar sem við seljum í þessum settum eru notaðar af islenska landsliðinu sem keppir um allan heim í strandveiði" sagði Tómas og bætir við:"Bara benda á að þessar  250.000 kr er  algert pro stöff sem enginn kaupir enda á þetta að vera ódýrt til þess að fólk geti gengið í þessa matarkistu sem er hér í garðinum okkar og við þurftum Bretann og Pólverjann til þess að sýna okkur það".

Það er ekki annað hægt en hvetja fólk til að prófa því þetta er í senn frábært sport, ódýr skemmtileg útivera sem hentar allri fjölskyldunni og svo getur þú nýtt allan aflann sem er oft á tíðum mjög góður.  Er þetta ekki það sem veiði á að snúast um?

mbl.is

Bloggað um fréttina

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert