Ómótstæðilegur ís með óvæntu bragði

Grænn og gómsætur rjómaís með basilikum.
Grænn og gómsætur rjómaís með basilikum. mbl.is/Julie Polar De Greeve

Basilika er ein elsta og vinsælasta kryddjurt sem til er í heiminum. Við notum hana óspart til að bragðbæta matinn en sjaldan í þessu formi sem við kynnum hér. Mjúkan heimatilbúinn ís með basiliku ættu allir að prófa, því hann kemur sannarlega á óvart.

Frískandi ís með basilikum (fyrir 6)

  • 5 eggjarauður
  • 175 g sykur
  • 1 vanillustöng
  • ½ l nýmjólk
  • 2,5 l rjómi
  • Salt á hnífsoddi
  • 50 g basilika

Aðferð:

  1. Pískið eggjarauður og sykur vel saman, þar til blandan verður ljósgul á lit og það þykk í sér að hún lekur úr þeytaranum í klumpum.
  2. Skrapið kornin úr vanillustönginni og setjið í pott ásamt stönginni, mjólkinni og rjómanum. Hitið upp að suðu og takið þá strax af hellunni.
  3. Hellið mjólkurblöndunni smátt og smátt í eggjablönduna og hrærið í á meðan.
  4. Hellið öllu aftur í pottinn á vægan hita og leyfið blöndunni að þykkna. Hrærið í á meðan þar til blandan hefur náð 85°.
  5. Takið pottinn af hellunni og hellið í gegnum sigti yfir skál. Hrærið í blöndunni í skálinni þar til blandan hefur kólnað.
  6. Blandið smávegis af kreminu saman við basilikublöðin. Bætið svo restinni af kreminu út í og blandð saman. Leyfið blöndunni að standa yfir nótt í ísskáp.
  7. Setjið næsta dag inn í frysti. Gott er að taka ísinn út 20 mínútum áður en hann er borinn fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert