Fyrsta mathöllin á Akureyri verður að veruleika  

HAF STUDIO, sem eru í eigu hjónanna Hafsteins Júlíussonar og …
HAF STUDIO, sem eru í eigu hjónanna Hafsteins Júlíussonar og Karitasar Sveinsdóttur, sér um hönnunina á mathöllinni á Glerártorgi. Samsett mynd

Nú er komið að því að fyrsta mathöllin á Akureyri verður að veruleika en hún mun opna í byrjun sumars. Stefnan er sett á að opna samtals sex veitingastaði í rýminu og eru framkvæmdir nú þegar hafnar. Greint var frá þessu á frétta­vef Vikublaðsins.

Verður staðsett á Glerártorgi

Mathöllin verður staðsett í norðausturhluta Glerártorgs þar sem Vodafone og Kaffi Torg var áður og verður opin umfram almennan afgreiðslutíma Glerártorgs og þurfa þá svangir og þyrstir gestir mathallarinnar því  ekki að hverfa frá svæðinu þegar verslanir loka.

Framkvæmdir eru komnar á fullt.
Framkvæmdir eru komnar á fullt.

„Það er löngu kominn tími á að opna mathöll á Akureyri og við stukkum á tækifærið þegar það gafst. Um leið og við fórum af stað með verkefnið spruttu upp hinar og þessar hugmyndir um veitingastaði í mathöllinni og við hlökkum til að sjá allar þær nýju hugmyndir sem koma til með að berast okkur nú þegar við erum formlega búin að boða komu okkar. Ég hvet alla áhugasama um að hafa samband við okkur,“ segir Kristján Ólafur Sigríðarson, rekstrarstjóri mathallarinnar, eins og greint er frá á fréttavef Vikublaðsins í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert