Undursamlegt hunangs- og möndlu latte

Undursamlega ljúffengt hunangs- og möndlu latte fyrir kaffiunnendur.
Undursamlega ljúffengt hunangs- og möndlu latte fyrir kaffiunnendur. Samsett mynd

Á köldum og dimmu dögum er ekkert betra en að ylja sér við heita og ljúffenga drykki. Hér er uppskrift að undursamlega góðu hunangs- og möndlu latte sem býður upp á ljúffenga bragðupplifun og gleður sálina.

Hunangs- og möndlu latte

  • Tvöfaldur espresso  Lavazza Qualità Oro
  • 100 ml möndlumjólk
  • 15 ml hunangssíróp

Aðferð:

  1. Útbúið hunangssíróp með því að hita saman jafnt hlutfall af hunangi og vatni.
  2. Lagið kaffið í stóran bolla.
  3. Bætið sírópi saman við.
  4. Flóið mjólkina og hellið yfir kaffið.
  5. Gætið þess að hita mjólkina ekki of mikið, eða að hámarki 55-65°C.
  6. Eigið notalega stund með kaffibollann og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert