Kryddpíurnar hittast að nýju

Kryddpíurnar hittu Karl Bretaprins er hljómsveitin var á hátindi ferils …
Kryddpíurnar hittu Karl Bretaprins er hljómsveitin var á hátindi ferils síns. AP

Útlit er fyrir að Kryddpíurnar komi saman að nýju á morgun - en þá verða þær viðstaddar skírn Brooklyn og Romeo Beckham, að því er fram kemur í frétt Ananova. Synir Victoriu og David verða skírðir við athöfn í einkakapellu Beckham-hjónanna á heimili þeirra í Hertfordshire.

Heimildamaður breska blaðsins Daily Mirror, sem þekkir vel til Victoriu Beckham, sagði: „Allar fyrrum Kryddpíurnar hafa þegið boð um að mæta til skírnarinnar og Victoria og David hlakka til þess að hitta þær.“

„Eflaust mun einhver spenna myndast en þær hafa þó ábyggilega um margt að spjalla,“ bætti heimildamaðurinn við.

Meðal annarra sem viðstaddir verða skírnina eru Elton John og David Furnish, unnusti hans, Liz Hurely og Damian sonur hennar, auk Greg Rusedski og konu hans Lucy.

Victoria á von á þriðja barni sínu í mars og er sögð óánægð með vöxt sinn eins og stendur. Því hafa gestir verið beðnir um að „gæta hófs“ í klæðaburði. Hafa konur sem koma til skírnarinnar verið beðnar um að klæðast ekki flegnum kjólum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að opna augu samferðamanna sinna og svo sannarlega að hafa það á tilfinningunni að maður sé einn í heiminum. Sýndu þig verðugan að vera frjáls.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að opna augu samferðamanna sinna og svo sannarlega að hafa það á tilfinningunni að maður sé einn í heiminum. Sýndu þig verðugan að vera frjáls.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav