Kate Bosworth og Orlando Bloom eru hætt að vera saman

Orlando Bloom er hættur að vera með Kate Bosworth.
Orlando Bloom er hættur að vera með Kate Bosworth. AP

Kate Bosworth og Orlando Bloom eru hætt að vera saman. Þau kenna því um hversu mikið sé að gera hjá þeim í leikarastarfinu. Þau voru saman í tvö ár og hefur talsmaður þeirra staðfest sambandsslitin.

"Þau ákváðu að taka sér hlé og vera aðskilin og er það vegna vinnunnar. Þau eru enn mjög náin. Þetta var sameiginleg ákvörðun," sagði talsmaðurinn í samtali við People.

Ekki er ljóst hvenær þau slitu sambandinu eða nánari ástæður þess. Parið sást síðast saman á hótelinu Chateau Marmont í Hollywood 21. janúar. Bloom gisti þar á meðan á Golden Globe-verðlaunahátíðinni stóð. Bosworth, sem er 22 ára, og Bloom, sem er 28 ára, hafa bæði nóg að gera. Bosworth leikur Lois Lane í kvikmyndinni Superman Returns og Bloom er í mynd Ridley Scott, Kingdom of Heaven, sem verður frumsýnd í maí.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson