Flottustu rassarnir valdir og sýndir

Nítján ára stúlka frá Búlgaríu og 24 ára Rúmeni hafa flottustu rassa í heimi að mati dómnefndar í rassafegurðarsamkeppni sem undirfatafyrirtækið Triumph efndi til. Greint var frá niðurstöðum í gær, og hlutu sigurvegararnir tíu þúsund evrur í verðlaun og samning um fyrirsætustörf fyrir Triumph.

Fyrir nokkru lýsti fyrirtækið eftir myndum af rössum á vefsíðu sinni og sendu um 15.000 manns frá 29 löndum inn myndir af sér. Yfir fimm milljónir manna heimsóttu vefinn og þar af skráðu sig um 130.000 manns og völdu þá tíu rassa sem þeim þóttu flottastir.

Alls mætu svo 45 rassar til úrslitakeppninnar í München þar sem sjö manna dómnefnd valdi sigurvegarana, Kristinu Dimitrovu og Andrei Andrei. Auk ofangreindra verðlauna voru rassarnir á þeim tryggðir fyrir slysum.

Rassinn á Dimitrovu.
Rassinn á Dimitrovu. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson