Soundspell í úrslit alþjóðlegrar lagakeppni

Soundspell á Airwaves í fyrra.
Soundspell á Airwaves í fyrra. Árvakur/Árni Torfason

„Dómnefndin var ein af ástæðunum fyrir að við sóttum um. Ef við náum svo langt að þetta lið hlustar á okkur væri það alveg nægur vinningur fyrir okkur,“ segir Áskell Harðarson, bassaleikari hljómsveitarinnar Soundspell.

Lagið Pound með Soundspell er komið í undanúrslit alþjóðlegu lagakeppninnar ISC. Meðal dómara í keppninni eru Tom Waits, kanadíska söngkonan Nelly Furtado, frumkvöðullinn Jerry Lee Lewis, Frank Black, forsprakki Pixies, og Robert Smith úr hljómsveitinni The Cure. Þá sitja forstjórar útgáfufyrirtækja á borð við Universal og Epic Records einnig í dómnefnd.

Fundu keppnina á Netinu

„Við erum með aðgang með heimasíðu sem heitir Sonic Bids. Þar eru upplýsingar um tónleika, hátíðir og keppnir,“ segir Áskell spurður um tildrög þess að þeir tóku þátt í keppninni. „Við fengum sendar upplýsingar um keppnina í nóvember og ákváðum að slá til og vera með. Við sendum þeim diskinn okkar og fengum svar í nótt um að við værum komnir í undanúrslit.“

Lagið Pound er á fyrstu breiðskífu Soundspell sem kom út í byrjun september í fyrra. Fyrir fyrstu verðlaun í keppninni fást tæpar tvær milljónir króna í verðlaunafé ásamt ýmsum öðrum vinningum. Ekki hefur verið gefið upp hversu margar hljómsveitir eru komnar í undanúrslit, en 4. febrúar verður tilkynnt hvaða hljómsveitir komast í úrslit og hefst þá netkosning.

„Við vonumst til þess að keppnin gefi eitthvað af sér,“ segir Áskell að lokum. „Það eru svo margir útgefendur og skipuleggjendur sem eru í dómnefnd í keppninni. Vonin er að komast eitthvað út.“

Í hnotskurn
Meðlimir Soundspell eru á aldrinum 17 til 18 ára og gáfu út sína fyrstu breiðskífu, An Ode to the Umbrella, í fyrra. Lagið sem Soundspell á í keppninni má hlusta á á myspace.com/spellthesound.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson