
James Blunt mun skemmta íslendingum 12. júní nk. Reuters
James Blunt með tónleika 12. júní
Bloggað um fréttina
-
Kristborg Bóel SteindórsdóttirÉg veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera
-
Magnús Geir GuðmundssonÞessir mættu alveg koma!
-
RebbýHlakka bara til ...
-
Þórður Helgi ÞórðarsonStórkostlegt!!!!!
-
Brynjar Páll RögnvaldssonGetið hver fer ???
-
Ómar Ingi FriðleifssonTryggja að tapið verði minna af Bob Dylan
-
Bergrún Ósk Ólafsdóttirog ég er að fara....
-
Ingi Björn SigurðssonEr hægt að bjóða fólki upp á endanlausan viðbjóð
-
Ómar Bjarki KristjánssonFrábært
Tónlistarmaðurinn James Blunt mun halda tónleika í Laugardalshöll fimmtudaginn 12. júní nk., samkvæmt tilkynningu frá Concert.
Blunt kom með látum fram á sjónarsviðið með plötunni Back to Bedlam árið 2005 og seldust rúm 11 milljón eintök af henni. Platan fór í 1. sætið í 18 löndum og á topp 10 í 35 löndum til viðbótar. Blunt fékk fimm Grammy tilnefningar, tvenn MTV verðlaun og tvenn Brit verðlaun fyrir plötuna. Hér á Íslandi seldust um 6.000 eintök af henni. Nýjasta plata Blunts, All the Lost Souls, kom út í september á síðasta ári og náði gullsölu á innan við viku.
Fyrir þá sem ekki vissu er vert að geta þess að áður en Blunt hóf tónlistarferil sinn starfaði hann í breska hernum. Fjölskylda hans á sér langa sögu í hernum og um leið og hann útskrifaðist úr Royal Military Academy Sandhurst skráði hann sig til herstarfa. Hann tók m.a. þátt í friðargæslustörfum í NATO í Kosovo.
Til baka







Senda inn efni