Valnefnd á vegum Sjónvarpsins hefur valið þau fimmtán lög sem keppa í Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fer í janúar á næsta ári. Alls bárust 217 lög inn á borð valnefndarinnar sem er leynilega skipuð og tók hún sér eina helgi í að hlusta á lögin og velja þau lög sem hún taldi vænlegust.
Þónokkrir góðkunningjar keppninnar verða aftur á ferðinni að þessu sinni en þar má helst nefna þá Örlyg Smára sem var boðin þátttaka í ár, Hallgrím Óskarsson, Óskar Pál Sveinsson, Torfa Ólafsson og Albert G. Jónsson. Alls eru lagahöfundar þrettán, en þrír af þeim eiga tvö lög; þeir Hallgrímur Óskarsson, Heimir Sindrason og Óskar Páll Sveinsson. Athygli vekur að enga konu er að finna á meðal þeirra lagahöfunda sem valdir voru áfram.
Lögin verða frumflutt á Rás 2 í vikunni áður en þau verða flutt í Sjónvarpinu til að gefa áhorfendum kost á að kynnast lögunum áður en þau keppa í beinni útsendingu. hoskuldur@mbl.is