Punxsutawney Phil sá skuggann sinn

Punxsutawney Phil, frægasta múrmeldýr heims, sá skuggann sinn í morgun þegar hann skreið úr hýði sínu í Pennsylvaníu.. Samkvæmt þjóðtrúnni þýðir þetta, að veturinn í Bandaríkjunum mun vara í að minnsta kosti einn og hálfan mánuð í viðbót.

Að venju var Phil dreginn út úr hýðinu í bænum  Punxsutawney í Pennsylvaníu í morgun, 2. febrúar. Sérstakir siðameistarar múrmeldýrsins lýstu því yfir, að dýrið hefði varpað skugga og því væri vorið ekki í augsýn.

Saga Punxsutawney Phil nær til ársins 1887 en siðurinn er rakinn til þýskrar þjóðtrúar sem segir, að ef múrmeldýr í hýði sínu sjái skugga sinn á kyndilmessu 2. febrúar muni veturinn dragast á langinn. Síðan hefur Phil séð skuggann sinn 98 sinnum, í 15 skipti hefur hann ekki varpað skugga og ekki eru til skrár um 9 ár samkvæmt upplýsingum frá múrmeldýraklúbbi Punxsutawney. Orðstír  Phils óx mjög þegar kvikmyndin Múrmeldýradagurinn var gerð árið 1993. 

Þessi þýska þjóðtrú hefur einnig náð til Íslands, ef marka má þessa gömlu vísu:

Ef í heiði sólin sést
á sjálfa kyndilmessu,
snjóa vænta máttu mest,
maður, upp úr þessu.  

Ben Hughes, aðstoðarmúrmeldýrasiðameistari í Punxsutawney með Phil.
Ben Hughes, aðstoðarmúrmeldýrasiðameistari í Punxsutawney með Phil. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson