Kevin Bacon ætlar að draga fram dansskóna

Ætli hann eigi rauða jakkann?
Ætli hann eigi rauða jakkann? Samsett mynd

Bandaríski leikarinn Kevin Bacon ætlar að draga fram dansskóna og rifja upp gömlu góðu Footloose-taktana ásamt útskriftarnemendum Payson High School í Utah. Skólinn á stóran stað í hjarta Bacon, en kvikmyndin Footloose var að miklu leyti tekin upp innan veggja skólans. 

Leikarinn, sem hefur átt farsælan kvikmyndaferil, gladdi útskriftarnemendur Payson High School á dögunum þegar hann sagðist mæta á lokaball nemenda sem haldið verður í annarlok. 

„Nú verður dansað“

Nemendur skólans hófu á dögunum samfélagsmiðlaherferð, sem er titluð BacontoPayson, til að ná athygli leikarans. Ástæðan er sú að skólinn er að flytja í nýtt húsnæði og er þetta því síðasta tækifæri leikarans til að dansa í sama sal og Ren, karakter Bacon í Footloose, gerði árið 1984. Kvikmyndin fagnar einnig 40 ára útgáfuafmæli sínu í ár. 

Bacon tilkynnti nemendum skólans gleðitíðindin fyrir helgi og sagðist glaður mæta á lokaballið. Nemendur skólans hoppuðu hæð sína af gleði þegar leikarinn játaði boðinu, en allir nemendur skólans voru samankomnir í hátíðarsal skólans þegar Bacon birtist á stórum skjá og sagðist mæta. 

„Takk öllsömul! Nú verður dansað,“ sagði Bacon. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson