Valborg Ólafsdóttir sló heldur betur í gegn í fyrsta þætti beinu útsendinga The Voice, en hún hlaut standandi lófatak fyrir flutning sinn á laginu I Can't Make You Love Me með Bonnie Raitt.
„Ég er svo ánægð með þetta, við erum búin að vera að vinna í ákveðnum hlutum og þeir skiluðu sér allir!“ Sagði Salka Sól, þjálfari Valborgar. „Þú gerðir þetta svo vel að Unnsteinn var með hökuna niður á brjóstkassa, Svala var í því að sýna mér gæsahúð og við sáum bara að fólk var að standa upp. Þetta var ótrúlega flottur flutningur!“
Salka var svo hrifin af flutningi Valborgar að hún valdi Valborgu áfram næsta þátt The Voice, í undanúrslitin.
Það voru fleiri hrifnir af Valborgu, en hún var ekki minna lofuð á samfélagsmiðlum en í sjónvarpssal.
Valborg er í því að græta mig, þessi ljúfsàri tónn hittir mig beint í hjartað 💗 #voiceisl #valborg
— sisi astthors (@Sisi_Astthors) November 20, 2015
Vá þetta var besti söngur kvöldisins #TeamSalka Valborg #voiceisl
— Haukur Dýrfjörð (@haukurod) November 20, 2015
You made me love you, Valborg! Gæsahúð!!! #TeamSalka #voiceisl
— Arna Arnardottir (@arnaarnar) November 20, 2015
Valborg er mitt girlcrush í kvöld #voiceisl
— GudnyGardars (@GudnyGardars) November 20, 2015
Hrikalega flottur flutningur hjá Valborgu #TeamSalka #voiceisl
— Einar Bardar (@Einarbardar) November 20, 2015
nei ok þetta var gjörsamlega sturlað! Valborgu áfram. #voiceisl
— IMMO (@ischram) November 20, 2015