Christopher söng lagið Superstition með Stevie Wonder í fyrsta þætti beinu útsendinga The Voice, en þrátt fyrir glæsilega sviðsframkomu komst hann ekki áfram í undanúrslitin.
Helgi Björns var þjálfari Christophers í þáttunum og var sérstaklega hrifinn af sviðsframkomu kappans. „Þetta var frábært og gaman að fylgjast með þér og hvað þú vext þegar það er komið fólk í salinn.“
Unnsteinn hrósaði hattinum sem Christopher bar, en var ekki síður hrifinn af söngnum. „Þú komst mér mikið á óvart, allar hreyfingarnar voru frábærar. Þú ert mega töffari og getur verið ánægður með þetta. Ég dýrka þetta lag og þú skemmdir það ekki fyrir mér. Mig á líklega eftir að dreyma þetta í kvöld!"