Maður sem ók á tvo gaf sig fram

33 ára gamall karlmaður hefur gefið sig fram við lögregluna í Kaupmannahöfn og viðurkennt að hann hafi ekið á tvo hjólreiðamenn í borginni aðfaranótt laugardags. Mennirnir, sem báðir voru 25 ára, létust í slysinu.

Upphaflega var talið að silfurgrár leigubíll hefði ekið á mennina en við rannsókn á slysstaðnum varð ljóst að bíllinn var rauður, væntanlega sendibíll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert