Ebólu veiran getur borist með sæði í að minnsta kosti 82 daga að sögn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Stofnunin hvetur menn sem hafa smitast til að nota smokk við kynmök í að minnsta kosti þrjá mánuði eftir að þeir verða varir við einkenni ebólu.
Í yfirlýsingu frá stofnuninni eru menn hvattir til þess að gæta að hreinlæti eftir sjálfsfróun og helst ekki stunda kynlíf eða munnmök. Ef það er ekki hægt skal þá nota smokk.
Í fjórum rannsóknum, þar sem 43 sjúklingar voru skoðaðir voru þrír menn, sem höfðu læknast af ebólu, enn með veiruna í sæði sínu 40, 61 og 82 dögum eftir að einkenni komu fyrst í ljós.
Í yfirlýsingunni kom þó fram að ekki væri vitað um dæmi þar sem ebóla smitast með kynmökum og að ekki væri víst að sæðið sem veiran mældist í gæti smitað fólk af sjúkdómnum.