Leita að fjögurra barna móður

Samantha Henderson er 25 ára og á fjögur börn.
Samantha Henderson er 25 ára og á fjögur börn. Skjáskot af SkyNews

Lögregla í Bretlandi leitar nú að fjögurra barna móður sem hefur verið saknað í viku. Áhersla er lögð á leit í skóglendi og í og við vötn á svæðinu. Konan sást síðast fyrir utan grunnskóla 21. janúar síðastliðinn.

Samantha Henderson er 25 ára. Börnin hennar eru sex ára, fjögurra ára, tveggja ára og eins árs. Kærasti Henderson, Dominic Isom, 27 ára, er grunaður um að hafa myrt hana. Hann kemur fyrir dómara á morgun.

Lögregla hefur óskað eftir því að allir sem hafi hugsanlega upplýsingar um afrif Henderson gefi sig fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert