Níu ára grunnskólanemandi í bænum Odessa í Texas hefur verið rekinn tímabundið úr skólanum eftir meinta hryðjuverkaógn á föstudag.
Að sögn föður stráksins fór hann síðustu helgi ásamt fjölskyldu sinni að horfa á nýjustu myndina um ævintýri hobbitans Bilbós Bagga. Hreifst hann svo af myndinni að hann fékk sér hring í líkingu við „hinn eina hring“, sem Bilbó hefur ætíð meðferðis.
Kom hann með hringinn í skólann á föstudag og sagði þá við bekkjarbróður sinn að hringurinn væri búinn göldrum og gæti látið hann hverfa.
Skólastjórinn mun hafa sagt að hvers kyns hótanir sem vörðuðu öryggi nemenda yrðu ekki liðnar, hvort sem þær væru þessa heims eða annars. Skólastjórinn hefur neitað að svara fyrirspurnum fréttamanna.
Bæjarblað Odessa greinir frá þessu.