Hundraða saknað eftir skipskaða

Fimm hafa fundist látnir og hundraða er saknað eftir að farþegaskipi með 450 farþega hvolfdi á Yangtze-fljóti í Hubei-héraði í Kína.

Samkvæmt fréttum kínverskra fjölmiðla eru einhverjir farþegar lokaðir inni í skipsskrokknum sem flýtur á ánni á hvolfi. Skipið sökk seint í gærkvöldi en mjög hvasst er á þessum slóðum. Þrír hafa fundist á lífi og björgunarmenn hafa náð sambandi við fólk sem kemst ekki sjálft af skipinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert