Fimm létust og þrír særðust í sprengingu

Hermenn í Úkraínu standa við þunga vélbyssu.
Hermenn í Úkraínu standa við þunga vélbyssu. AFP

Fimm úkraínskir hermenn létu lífið þegar jarðsprengja sprakk í austurhluta Úkraínu þar sem uppreisnarmenn og her Úkraínu hafa tekist á. Átök geisa þar enn, þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið í gildi undanfarna fjóra mánuði.

Þrír til viðbótar særðust í sprengingunni, auk þess sem sjö hermenn til viðbótar hafa særst undanfarinn sólarhring í átökum í landinu. Átökin hafa kostað að minnsta kosti 6.500 manns lífið undanfarna 15 mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert