Jarðskjálfti sem mældist 6,8 stig reið yfir Búrma í morgun. Ekki er vitað um hvort einhver hafi látist né heldur hvort miklar skemmdir hafa orðið á mannvirkjum.
Skjálftinn, sem var á miklu dýpi, fannst í höfuðborg Taílands, Bangkok, og eins í höfuðborg Búrma, Yangon (en borgin hét áður Rangoon)