Einn látinn og yfir 100 særðir

Minnst einn er látinn og yfir 100 slasaðir eftir lestarslys …
Minnst einn er látinn og yfir 100 slasaðir eftir lestarslys í New Jersey í dag. /AFP

Minnst einn er látinn og yfir hundrað eru særðir eftir að farþegalest sem var á talsverðri ferð skall á brautarpalli á lestarstöð í borginni Hoboken í New Jersey í Bandaríkjunum í dag.

Samkvæmt fréttum sem bárust af slysinu fyrr í dag var talið að þrír væru látnir en nýjustu fregnir herma að aðeins hafi verið staðfest eitt dauðsfall. Þá séu 103 særðir hið minnsta.

Frétt mbl.is: Lestarslys í Bandaríkjunum

Hinn látni stóð á brautarpallinum þegar slysið varð og fékk í sig brak sem skaust um brautarpallinn eftir áreksturinn. Þetta segir Chris Christie, ríkisstjóri í New Jersey og kemur fram í frétt CNN.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert