Enski knattspyrnumaðurinn Adam Johnson, sem var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir barnaníð í mars, þénar 5000 pund (745 þúsund íslenskar krónur) á viku bak við lás og slá.
Hinn 29 ára gamli fyrrverandi leikmaður Sunderland fjárfesti fyrir fimm milljónir punda (745 milljónir íslenskra króna) í ýmsum fasteignum áður en hann var fangelsaður.
Johnson játaði í byrjun ársins kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku og var í kjölfarið vikið frá Sunderland. Margaret Byrne, framkvæmdastjóri Sunderland, sagði starfi sínu lausu eftir að hafa legið undir ámæli fyrir það að hafa leyft Adam Johnson að æfa og leika með liðinu þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot.
Johnson, sem er 29 ára gamall, var með 60 þúsund pund (8,9 milljónir íslenskra króna) í vikulaun þegar hann lék með Sunderland.
„Hann hefur þénað vel í mörg ár og hefur fengið góða fjárhagsráðgjöf. Hann átti stórt hús og bíla en hefur aldrei eytt peningum í tóma vitleysu. Hann verður ennþá ríkur maður þegar hann losnar úr fangelsinu,“ sagði kunningi Johnsons.