Franska lögreglan beitti táragasi á nemendur sem höfðu lokað fyrir inngang í 16 menntaskóla í París. Þeir mótmæltu ofbeldi lögreglunnar í garð ungs hörundsdökks manns sem sakar lögregluna um að hafa nauðgað sér með kylfu. Fyrr í mánuðinum þurfti lögreglan einnig að beita táragasi sem mótmæltu ofbeldinu og kröfðust „réttlætis fyrir Theo“. BBC greinir frá.
Fjórum lögreglumönnum var vikið úr starfi eftir að rannsókn á meintu kynferðisofbeldi hófst. Atvikið átti sér stað 2. febrúar og þurfti fórnarlambið, hinn 22 ára gamli Theo, að gangast undir skurðaðgerð á endaþarmi eftir misþyrmingar sem hann er sagður hafa sætt er hann var handtekinn af lögreglu í úthverfinu Aulnay-sous-Bois.
Mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan skólana og höfðu byrgt innganginn með ruslatunnum, spýtnabraki og öðrum lauslegum hlutum.
Engar fregnir hafa borist um alvarleg meiðsla á fólki. Hins vegar hafa birst myndir á samfélagsmiðlum þar sem átök sjást á milli mótmælenda og óeinkennisklæddrar lögreglu.
Lögreglan sagði að mótmælendur hefðu ekki farið eftir lögum þar sem ekki hefði verið veitt leyfi fyrir mótmælunum.