Að minnsta kosti þrír eru látnir og þrjátíu er enn saknað eftir að lítið skemmtiferðaskip, með um 150 ferðamenn innanborðs, sökk á uppistöðulóni í Kólumbíu í kvöld. Orsakir slyssins eru enn ókunnar.
Slysið átti sér stað á Penol-lóninu við bæinn Guatape í norðvesturhluta landsins. Bærinn er vinsæll viðkomustaður ferðamanna.
Skipið heitir Almirante. Uppistöðulónið sem það sigldi um er í um 68 kílómetra fjarlægð frá borginni Bedellin.
Báta sem voru á siglingu um lónið dreif að til að stoðar og gátu komið einhverjum farþeganna til bjargar.
„Nú þegar höfum við fundið þrjú lík og að minnsta kosti þrjátíu er saknað,“ sagði lögreglustjórinn Jorge Hernando Nieto í útvarpsviðtali í kvöld.